ZZZZZ Geysp .... Ég hef alltaf haldið því fram að ég sé sérstök á einn eða annan hátt en öskubusku prinsessa í bjarnslíki datt mér aldrei í hug

Ég alla vega lagðist til svefns fyrir rétt um ári síðan og hef legið í hýði síða þá greinilega.
En dreymdi mig eitthvað á þessu ohh hvað ég vona það´.......
Ég man nú ekki nema brota brot af því í augnablikinu því eitt ár eru jú 365 dagar og björn er ekki fíll og þar afleiðandi minnið eftir því.
Alla vega eru allir næstum ári eldri núna en síðast þegar ég bloggaði, ég hef mikið notað bloggið mitt sem vettvang til þess að fá útrás fyrir fílu, pirr og tuð sem ég vill hlífa mínum nánustu við eins og hægt er og ég sé ekki ástæðu til þess að breyta því þó svo ég ætti að vera búin að fá nógan svefn, ég er nefninlega að komast að því að það sem ég vildi að mig hefði dreymt er bara blákaldur veruleiki svo nú eftir að ég fór á fætur langar mig mest bara að fara að sofa aftur fram á sumar.
Stiklað á stóru í ekki draumum.
Atvinna /
Fjárhagur Ég var víst að byrja í nýrri tímabundni vinnu síðast þegar ég bloggaði ...... búin með þá vinnu og komin í aðra en þarf engu að síður að fá mér eina í viðbót líklega til þess að allt gangi upp.
Matti er að leyta sér af vinnu þessa dagana þar sem hann er atvinnulaus eins og er.
Fjölskyldumeðlimir / Krakkarnir stækka öll og þroskast á ógnarhraða miklu hraðar en leyfilegur hámarkshraði, það er svo spurning hvað er há sekt við því athæfi ég verð víst að margfalda það með fjórum þar sem þau eru fjögur að brjóta hámarkshraðan ....... hhhhmmmmmm þetta er kannski spurning um uppeldið ??? Nei ekki möguleiki, það neita ég að viðurkenna

FIdo týndist og var í burtu í 17 daga en var á lífi vannærður og þreyttur þegar hann kom aftur við mikla gleði fjölskyldumeðlima.
svo keyrði vörubíll utaní greyið nú í byrjun árs en hann komst skrámaður og óbrotin frá því ( ketttir hafa 9 líf ég hélt að hundar hefðu bara 1 ..... kannski eru einhver dulin gen í hundgreyinu því hann er alla vega búin með tvö nú þegar. )
Nú er komið að Aldísi að ákveða hvað hún vill gera næsta vetur eftir 9 bekk, hvað á að velja það er meira mál en við gerum okkur grein fyrir.

Svo er komið að því að skrá TInnu í skóla eyðublöðin komin í hús og útfyllt.
Húsnæði /heimili Kyndingin fór hjá okkur 1 sept sl. og út frá því kom í ljós rör-skaði undir gólfinu í þvottahúsinu þannig að þvottahúsið leystist upp smátt og smátt með brot og bramli, hávaða og látum ásamt litla baðherbergið frammi, inngangnum veggjum og lofti ...... sem sagt komumst við að því að viðbyggingin er greinilega byggð eftir venjulegan vinnutíma með bjór í annari og einhver verkfæri í hinni eða bara það sem hendi hefur verið næst og efniviðurinn var það sem fannst á víð og dreif í kílómeters radíus geri ég ráð fyrir aaarrrrrgggg.... og garg, þvílík og önnur eins vinnubrögð og frágangur að ekki sé talað um efnivið annað eins hefur ekki sést síðan 95 árum fyrir bankahrun. Og eftir sitjum við með stórskaða sem að vísu tryggingarnar dekka að mestu en samt sem áður verðum við að byggja næstum allt upp aftur á eigin kostnað sem er ekki til á þessu heimili.

Enn og aftur komst ég að þeirri niðurstöðu sem ég rek mig á aftur og aftur hér í landi þegar viðkemur hraða og þjónustu ... það tók svo sem ekki langan tíma að byrja á þessu og gekk ótrúlega hratt fyrir sig í fyrstu en svo var eins og allt stoppaði og komst bara ekki í gang aftur ...... þeir fengu sér víst einn öl eftir vinnu á föstudegi, alla vega tók það 56 daga að fá hita á húsið aftur .... 56 dagar er verið að grínast með þetta, og þá var allt annað eftir td. steypa gólfplötuna aftur setja upp milliveggi og einangra útveggi og klæða og svo frv. Nú er komið steypt gólf, grind fyrir milli vegg og búið að einangra útveggi og þh. þá er mikið eftir enn sem verður að bíða betri tíma, því miður þrátt fyrir hávær mótmæli húsmóðurinnar sem plantaði þessum fínu peningna-trjám hér úti í garði í bestu trú en þau virðast ekki gefa neinn ávöxt, ekki en að minnsta kosti ...... hefði ég kannski átt að kaupa af hinu gróðurhúsinu ?? voru með fínustu hassplöntu útsæði kannski hefði verið meiri hagnaður af þeirri gróðursettningu
Umheimurinn / Talvan mín hrundi á árinu og þar með öll mín samskipti við umheiminn velti því fyrir mér hvort það hafi komið í kjölfar banka og efnahagshrunsins ..... kannski voru einhver leynileg gögn í henni sem var búið að hakka inná mig og ég mátti ekki finna

mér skilst að bæði eignir og peningar séu geymdir á ótrúlegustu stöðum andsk... ég upplifði alla vega mikla einangrun og innilokunarkennd í þessa daga sem ég var tölvulaus. Ég sakna samt mest myndanna minna.
Dagurinn í dag / Eitthvað er fína systemið hjá okkur að klikka því við sáum það í morgunn að við erum orðin olíulaus á mánudagsmorgni löngu fyrr en áætlað var.
Reyndar er frostavetur í danmörku og skíta kuldi en mér finnst þetta samt full mikil eyðsla ......... að ekki sé talað um kostnað.
Hvaða bjánar eru það sem kynda upp heilt hús og allt vatn með olíu nú til dags,
ég hélt við hefðum verið að fagna árinu
2010 nú ekki alls fyrir löngu.
En það er hægara sagt en gert að skipta þessu dóti út , ég veit bara að ef ég myndi kynda með olíu á íslandi væri ég stimpluð sem Hill billy eða Gunna á hlíðarenda 2.
Staðreynd /Þessa dagana vantar í mig alla Pollýönnu ég minni meira á gömlu úrillu kerlinguna sem lá í rúminu og skammaðist yfir allt og öllu. Ég finn að öllu og er voða dugleg að týna fram það sem er ekki í lagi eða eins og ég vil hafa það
Geymt en ekki gleymt /Auðvita erum við búin að eiga og hafa góða og yndislega tíma á þessu ári og búin að fá marga góða gesti og þh nú síðast yfir áramótin þegar að Inga systir var hjá okkur en einhvern vegin á ég fullt í fangi með að segja sjálfri mér frá því hvað við erum rík og heppin þessa dagana því ég gleymi því um leið og ég hef sleppt orðinu. þannig að ég geymi aðeins að blogga um þetta skemmtilega það passar heldur ekki alveg inní þessa færslu.

Ég er að upplifa bæði þjóðfélagskreppu og sálarkreppu hugsið ykkur ég bý í danmörku en ekki á íslandi hvernig haldið þið að hlutirnir væru hjá mér ef ég byggi heima og væri að upplifa kreppuna þar.

hehe mig vantar bara að láta hlutina ganga hraðar fyrir sig og eins og ég vil láta þá ganga ekkert öðruvðisi, binda endahnútana á það sem þarf að klára og halda svo áfram ....
Köld kveðja / nú er nóg komið í bili það verður ekki langt í næsta tuð eins og skapið er þessa dagana
Ég er ekki janúar manneskja og alls ekki fædd til þess að vera í kulda bbbrrrrrr bbrrbrrrr.
þekki samt sem áður fullt af yndisleg fólki sem fætt er í janúar þar á meðal hann Ágúst minn en kuldi, frost, og vetur við eigum bara ekki skap saman svo talandi um kjánaskap að flytja frá Ísl. til Dk af hverju ekki eitthvað suður á bógin fyrst það er verið að rífa alla upp með rótum hvort sem er. hmmm. týpisk ég